Ummæli
Hvað segja okkar viðskiptavinir
Þorbjörg heiti ég og vil deila með ykkur mína reynslu á Tru-Releaf. Fyrir 3 árum lendi ég í slysi sem verður til þess að það má ekkert koma við hnakkan á mér. Að fara að sofa var mikill kvíði þar sem þristingurinn var mikill á hnakkanum. Ég þurfti að taka mikið af verkjalyfjum yfir daginn og enn meira fyrir svefn til að geta sofnað. Ég var alltaf mjög ósátt hvað ég þurfti mikið af lyfjum til að meika daginn. En þegar ég prufaði Tru-Releaf varð mikil breyting þar sem verkjalyfjunum minnkuðu til muna því kremið vann og vinnur vel á verkina. Fyrir svefn þarf ég engin verkjalyf bara þetta undrakrem.
Tru-Releaf slær það vel niður verkina mína.
Ég mæli með þessu kremi 100% fyrir þá sem eru verkjapésar eins og ég
Mér var bent á Tru-Releaf kremið af vini, og var ég nokkuð efins að það virkaði fram yfir önnur krem.
En ég hef verið að þjást af miklum hnjáverkjum undanfarið ár, mikil notkun af voltaren Rapid ,2-3 á dag og panodil eins og smartis veitti mér einhverja hjálp en eftir að ég fór að nota þetta krem reglulega, þá tek ég bara voltaren annað slagið. Og panodilið er komið í skúffuna.
Í byrjun þegar ég heyrði um TruReleaf var ég ekki alveg viss með það, þar sem það eru til allskonar krem sem eiga að laga hina og þessa verki en virka síðan ekkert. Eftir að hafa prufað TruReleaf í nokkrar vikur þá get ég ekki annað en 100% mælt með því. Ég nota þetta við höfuðverkjum og vöðvabólgu
Ég æfi þríþraut svo ég stunda mjög mikla hreyfingu og er búin að vera með álagsmeiðsli í mjöðmum núna frekar lengi..byrjaði að nota kremið fyrir æfingar og á kvöldin þegar ég var slæm og hefur aldrei liðið betur í mjöðmunum gæti ekki mælt meira með þessu kremi fyrir íþróttafólk með meiðsli